8.9.2018 | 01:13
Dagur 10
Þegar við fórum á ról í Austurríki var byrjað á morgunmat og svo farið yfir daginn.
Eftir það fórum við á hátíðarsvæðið við Faaker See sem tók okkur 35-40 mín að aka.
Þar var mikil stemmning og mjög mörg mótorhjól.
Borðuðum hádegismat og skoðuðum í sölutjöldin en svo fórum við þrír sem eftir stóðu af stað til Salzburg í Þýskalandi. Þegar á leið tókum við ákvörðun um að halda áfram til Munchen, n.t.t. til Erding.
Erum þar á ágætu hóteli nálægt mótorhjólaleigunni.
Við lentum í mikilli rigningu í dag ásamt öðrum hrakningum en við stóðum þetta af okkur og lukum deginum með 363 km akstri... að miklu leyti á hraðbraut, eða um 200 km. Síðan fórum vuð út að borða hérna við hótelið en við vorum orðnir ansi þreyttir eftir daginn og ber þessi færsla þess merki.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.